Er allt af fara til andskotans

Halló halló

Langt síðan ég hef gefið mér tíma til að blogga.  Núna er tími til komin að segja nokkur orð um þetta ástand sem er á landinu í daga.  þar er gengið svo langt að sonur minn sem er 13 ára sagði í dag við mig "mamma afhverju er allt að hækka svona svakalega er ekki komin tími til að flytja til annara landa. Sko málið er að ef stóru karlarnir í Seðlabankanum hækka ekki stýrivextina þá fer verðbólgan af stað og þá hækka allir vextir af öllum lánum líka þeim sem eru verðtryggð svo.  Svo nú eru þeir sem eru með skammtímalán og yfirdrætti í vondum málum en þeir sem eiga peninga eru í góðum málum.  þeir sem eru með lán í erlendu gengi eru líka í vondum málum en ef gengið fer niður þá lækka þau lán strax en þau sem eru búin að hækka vegna vaxtahækkana lækka ekki svo fljótt niður.Launahækkunin sem var samið um um daginn er farin og miklu meira en það.  Ef þetta fer ekki að stoppa þá erum við í virkilega vondum málum.  Ég t.d. hef ekki farið til útlanda í 4 ár keypti mér um áramótin ferð með mínum manni til USA og það átti að versla nú verður bara farið að skoða.  Svo fórum við og keyptum ferð til Tenerife sem verðu farin í ágúst sem piltana 2 og ferðin var borguð strax og það er það sama það verður bara farið að skoða þar.  Við tókum eldhúsið allt í gegn og það hækkaði allt þegar við vorum að því en við vorum rétt búin að kaupa innréttinguna áður en allt fór af stað en eigum eftir að borga síðustu afhendinagar greiðsluna og það má víst ekki hækka hana þar sem innborgun hefur varið fram. En fróðir menn í útlöndum segja að þetta verði búin í sumar.  Trúum þeim þeir sögðu líka ða þetta væri að koma svo þeir vita allt.  Ég treysti á þá. 

En að öðru vorum að ferma prinsinn það 9. mars og það var svo gaman að nú sé ég eftir að hafa ekki átt fleiri börn með þéttara millibili eins og hún Lind á stöð 2 hún á eftir að ferma 5 sinnum. 

Hann var flottastur af öllum fermingabörnunum en samt voru þau öll dásamleg.

 Jæja er að fara að sofa var víst búin að lofa að mæta í tíma til Hrafnhildar í Sporthúsinu kl 6:20 verð að standa við það en komon eini frídagurinn minn og ég þarf að mæta.

 Góða nótt.

 kv,

Bjarney


Hvað er í gangi !!!!!!

Nú er ég svo hissa á þessu öllu saman.  Hvað er Eyjólfur enn að gera sem þjálfari landsliðsins.  Eigum við bara að kyngja því að við töpum flestum leikjum eða jafntefli og vinnum einn leik.  Það væri svo sannarlega búið að reka  marga úr vinnu á hinum almenna markaði fyrir svona vinnubrögð.  það er eins og hann haldi að það að leikmenn spili annarsstaðar sé það nóg æfing en svo koma þeir saman og þá kemur bara úpps hjá Eyjó og svo segir hann bara "ég hætti ekki neitt".  Ásgeir og Logi sýndu sömu stöðu á liðinu og Eyjó og þeir voru reknir. Er einhver vinátta þarna á milli sem segir að það megi ekki láta Eyjó fara sömu leið.  Hann segist bara vera að fikra sig áfram með liðið. Það er ekki tími í það núna.  Ég er svo hissa á þessu öllu jemin eini.

 Ég var að koma frá Landspítalanum Fossvogi og eftir að hafa setið þar í nokkurn tíma sá ég að það er ótrúlegt fyrirkomulag á þessu öllu.  Það fólk sem vinnur þarna er sko ekki í kaffi að slóra, það voru allir á fullu allan tíman sem ég var þarna ( frá 11-14).  Ég hef alltaf haldið að þegar maður bíður þá sé fólk í kaffi eða mat en það er öðru nær eftir þessa heimsókn. Ég fékk frábæra þjónustu þarna.

Það var ekki löng fangelsisvistin hennar Paris Hilton. Hún varð lasin greyið.  Hvað með það gat hún ekki farið til læknis og klárað þetta eins og hver annar fangi.  það er nú meiri refsingin að þurfa að vera með ökklaband og komast ekki út fyrir dyr á lúxus höll í nokkra daga.  Komon .

Jæja ég er farin út í góða veðrið

bæjo

Bjarney

 

 


hitt og þetta

Ég hef verið að hlusta á útvarpið í dag og það er  mikið talað um fótbolta.  Nú þegar Ísland er búið að tapa fyrir mjög litlu landi sem við áttum að vinna er allt ömurlegt. Það á að reka Eyjólf, Eiður ekki  að skila sínu fyrir landsliðið og það ætti að lækka hann í tign. Svo var talað um að þetta væri ekki þeim að kenna heldur KSÍ fyrir að láta liðið ekki koma saman oftar.  Vá það er  pressa að vera þjálfari og einn leikmaður í landsliðinu.  Hvað með alla hina leikmennina sem voru inni á vellinum.  Það er ekkert talað um þá. Svo kemur leikurinn í dag, á sjálfum þjóðhátíðardegi Svía, ég get ekki beðið eftir því að heyra í útvarpinu ef við vinnum "það á að gera lengri samning við Eyjólf hann er frábær og Eiður hann er sko alltaf að skila sínu" bíðið bara en ef við töpum þá er best fyrir þessa tvo menn að fara í felur en hinir geta farið í Smáralindina og ekkert gerist.  Einn sagi í útvarpinu í morgun "af hverju ætti Eiður að vera að slíta sig út fyrir Ísland þegar hann spilar fyrir miklu mikilvægar lið" ég efast um að hann hugsi þetta svona.  Hann er söluvara og veit það vel  - hallóóóóóó.

Eins og flestir landar mínir spáir maður svolítið í veðrið.  Nú er komin 6.júní og ég er enn í úlpunni minni sem ég var í vetur - að vísu ekki góð úlpa fyrir vetrar veður- krakkana mína enn í sokkabuxum og húfu en búin að leggja kuldaskónum - kannski bjartsýni -.  Hvenær kemur sumar þ.e.a.s sumarjakki og engar sokkabuxur eða húfur.  Þetta hlýtur að koma núna. 

Hvað er málið með seðlabankastjórann launahækkun um 200.000 þúsund , núna hækka allir vextir.  Spáið í það 200.000x12= 2.400.000 á ári. Þetta er ömurlegt.

 Það var verið að tala um reglur um hjól í útvarpinu í gær.  Það var rætt um að búðir sem selji hjól ættu ekki að selja hjól nema þau fylgi íslenskum öryggisreglum.  Þ.e.a.s. bjalla, glitaugu, lás og bretti.  Ég var að kaupa hjól fyrir son minn sem er 7 ára og þurfti að kaupa bjöllu, lás, bretti(sem voru ekki til í búðinni).  Nógu dýrt var nú hjólið fyrir 7 ára 22.000 og svo gat ég fengið fyrir mig úr áli - er víst rosa flott-  á 32.000.  Ég keypti bjöllu - ekki hægt að hafa gömlu með Timon og pumpa  þegar maður er 7 ára-  hún kostaði 600 kr, svo lásinn 2000 og brettin annað eins.  Þetta er komið í 27.000 kr fyrir barnahjól - halló hvað er að gerast.  Þegar ég kaupi hjól þá að það er vera með öllu þessu svo barnið mitt sé löglegt í umferðinni.  Ef við kaupum bíl þá fylgja öryggiselt, öryggispúðar, stuðarar og annað til að gera bílana löglega - af hverju ekki eins með hjólin.  Svo var skoðun í skólanum þar sem löggan kom og gaf krökkunum miða á hjólin ef þau voru lögleg.  Ég gat ekki farið með nýja holið sem er bara búið að hóla á einu sinni út.  Því það vantaði brettin.  Fúlt engin límmið.

Jæja nóg í bili

Bæjó

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Halló landar

Jæja þá er mánudagur sem er mánudagur hafinn.  Reyndar fyrir löngu þar sem hann byrjaði með ræktinni kl 6 í morgun alltaf gott að fá að öskra á aðra kl 6 og allur dagurinn eftir og búin að öskra fyrir daginn. 

Gaman að sjá að fræga fólkið fer í fangelsi. Nú er Paris Hilton að fara í tughúsið haldið að það verði fjör.  Skildi hún fá allar vinkonur sínar í heimsókn. En það er gott að hún sleppur ekki við þetta.

Ég frétta af djamminu um helgina að það hefi fundist frekar vond lykt á skemmtistöðum um helgina.Svitalykt og önnur hormóna tengd lykt.  Margir sem söknuðu reyksins og lyktarinn sem væri þó skárri en sú sem fannst.  Jemin ástandið.

Nú liggur Kalli Bjarni í því.  Hvað er strákurinn að hugsa. Það er greinilegt að það að vera Idol stjarna gerir mann ekki ríkan.  Ég hef ekki vita til að það sé nafngreint hverjir koma með þetta inn en það spurning um að gera það alltaf hér eftir. Þá verða fréttirnar þannig: Guðmundur Jónsson kom í gær með 2 kg heróíni inn og var tekinn.  Bara besta mál er það ekki.

Ég var að horfa á American next topmodel í gær og mikið var ég ánægð að sjá að það eru þar stelpur sem eru ekki 40 kg og undir og svo er Tary sjálf bara fín búin að fitna um 14 kg og er bara flott eins og hún er.  það er von um að þetta sé að lagast þarna úti með að vera 40 kg og undir. 

Ég held að ég sé að verða blönk núna á skrifum einhver meinloka í gangi.

See you,

Bjarney


Úr ýmsum áttum

Góðan daginn,

Nú styttist í reyklausa veitingastaði.  Ég er að reyna að hugsa þetta til enda.  Fólk kemur úr heimahúsum búið að fá sér einn og anna til og rettu með.  Sumir kannski reykja bara þegar það fær sér í glas - segist svo ekki reykja þegar það fyllir út líftrygginguna sína, ódýrari trygginga þannig - svo er komið á djammstaðinn og þá á að skrúfa fyrir (gangi ykkur vel ).  Ef við förum nú dýpra í þetta þá er fólk að drekka í sig kjark til að t.d. hitta hitt kynið (eða sama kyn ef þannig er málið), þegar kjarkurinn er kominn þá er frekar lummó að sitja ein(n) við borð og gera ekki neitt svo það er kveikt í einni - lítur betur út þannig. Svo þetta er orðið efni fyrir sálfræðinga að fara á djammið og hjálpa fólki í mikilli krísu með sjálfstraust þegar rettan er horfinn og bara bjórinn eftir.  Sjáið bara lögfræðinginn í Boston Leagal um leið og hann setur upp í sig spýtu rettuna þá kemur nýr maður í ljós.  Þannig að endirinn er sá að eftir 1. júní þá getur þú treyst því þegar þú ferð á djammið að leita að maka að þá sérðu einstaklinginn eins og hann er venjulega (ekki í örðu gervi), og þú sérð hann í skýru ljósi ekki þoku. Besta mál held ég.

'Eg er búin að vera að hugsa um reglurnar um síma í bílum.  Það er bannað að tala í síma þegar keyrt er því það hefur áhrif á akstur ökumanns.  Mér finnst alveg milljón að sjá fólk senda sms þegar það er að keyra, það er ekki bannað - eða er ÖLL NOTKUN GSM SÍMA - bönnuð veit ekki.  Síðan sá ég um daginn þar sem bílstjórinn var að taka utan af banana, tala í síman og reykja - er hægt að gera meira á sömu mín.  VÁ MAÐUR.  Svo var það í vetur í kringum des að það var strætóbílstjóri að lesa bók á meðan hann keyrði - hefur verið í prófum blessaður vinurinn og að renna út á tíma.

 Nú er það slæmt hjá KR þeim var spáð efstu sætum í deildinni en þeir hafa eitthvað misskilið þetta því þeir eru í neðsta sæti - úpps.  Nú er næsti leikur þeirra 10.júní og við ÍA sem er líka á botninum en þetta verður ekki auðvelt fyrir KR  í sumar - en sumarið er ekki búið - við gætum séð þá spretta upp deildina eða það er líka alltaf gott að skipta bara um þjálfara - auðveld leið sem hefur oft verið notuð.

 Jæja takk í bili sjáumst.

Bjarney


Mánudagur sem er þriðjudagur

Halló halló,

Nú er stóra helgin búi sem búið er að bíða eftir frá því páskarnir liðu og nú er bara að vinna og vinna alla daga vikunnar þar til 17.júní sem er ekki einu sinni frídagur þar sem hann er á sunnudegi.  Þar fór það. 

Það er alltaf gaman að setjast niður eftir góða æfingu á morgnanna og lesa blöðin.  Í morgun stakk mig ein lítilli  frétt um famingóa í Bretlandi sem eru hommar og eiga að fá að ættleiða unga.  Hugsa sér það er auðveldar að vera flamingó fugl sem hommi en mannvera sem hommi.  Fuglarnir eru búnir að vera saman í sex ár og búni að gera tilraunir til að stela eggjum hjá örðum fuglum en það hefur ekki tekist svo þeir fá nú góða og snögga aðstoð með einn unga sem hefði kannski annars orðið munaðarlaust grey.

Svo fór ég á mbl.is og sá þar frétt um að umboðsmaður barna í Póllandi hefur dregið til baka umsagnir sínar um að einn af Stubbunum sé hommi.  Ég er búin að vera að horfa á Stubbana af og til í 6 ár og það er búið að tala um það að einn sé með homma merki á hausnum (ef ég man rétt þá er það sá fjólublái). Hvað með það þó einn sé hommi eða með homma merki á hausnum, ég held að krakkar sem horfa á þessa einföldu þætti séu mikið að spá í þetta og hvað er það okkar að vera að opna þennan saklausa heim fyrir þeim.  Ég veit að þetta er ekki það sem er rætt um við börnin þegar horft er á þættina en fullorðnum börnin eru að tala um þetta. HVAÐ ER MÁLIÐ. 

Ég fór í sveitina um helgina og lagði af stað seint í gærkvöldið heim.  Það var ákveðið að stoppa við hjá Kerinu og sjá það náttúru djásn sem þar er.  Mér skilst að það sé nú í einkaeign. Ég myndi nú segja að það svæði sé opin vettvangur fyrir slys,  Það er ekki einn kaðall meðfram brúninni til að hindra það að fólk fari á fullri ferð ef því skikar fótur.  Hvað er málið er ekki tilvalið að setja þarna einhverjar varnir áður er það verður slys og einhver týnir jafnvel lífi sínu þar.  Það er alveg á hreinu að það verður mega lögsókn þar á ferð. 

Ég man ekki eftir meira í bili en það kemur öruggleg eitthvað þegar ég leggst á koddann en það fer í langtíma geymsluhólfið í nótt og læt það svo vaða á ykkur á morgun.  þangað til hafði það gott.

Kv,
Bjarney

 

 

 

 

 

 

 


Komin föstudagur jibbi jibbi

Góðan daginn landar mínir,Það var skrítið að eftir umræðu mína í gær um Viagra töflurnar við flutþreytu  sá ég þegar ég var að lesa blöðin í morgun að það er komið krem fyrir okkur konurnar (enn eitt) sem heitir Viagra krem.  Skondið að það sé ekkert fundið upp í þessum málum svo árum skiptir og svo kunna allir allt í sambandi við hönnun á þessum unaðskremum.  Þetta er víst kalla þróun - besta mál.Annars  var þetta eitthvað skrítinn dagur í dag. Ekkert að skafa af bílnum í maí,  sólin kom og blöðin á réttum tíma.  Skildi þetta vera logn á undan stormi.  Við verðum bara að bíða og sjá.Ég var að hlusta á Super á fm 95,7 sem ég geri nú á hverjum morgni á leiðinni í vinnuna og þá komst ég að því að ég er "gömul" .  Það var nemi í kynningu hjá þeim og það var verið að spyrja hana hvort hún myndi eftir nokkrum atriðum sem höfðu verið hvað heitust undanfarin ár.   Það var t.d Duran Duran, Wham, Hallbjörn Hjartarson,  Gleðibankinn,  Lego, Grýlurnar og marga aðra góða "skemmtikrafta", en hún þekkti ekki einn einasta sem var nefndur af þessum ofangreindum.  Fyrir mér var þetta í gangi um daginn og er ég nú bara 36 ára. Hvað gerist í lífinu að þetta fer allt á tvöfaldan hraða eftir 20 ár aldurinn?????Ég held að miðað við alla þá tölvupósta sem ég fær um það að ef ég sendi þá ekki áfram til að minnst 20 manns þá sé líf mitt á enda eða önnur ömurlega óhamingja dempist yfir mig þá ætti ég að vera löngu dauð og ef ekki dauð þá með þunglyndi á mjög hættulegu stigi.  Það er nú meira hvað fólk sendir svona áfram, væri ekki réttara að stoppa svona pósta.  Hugsa sér ef ofsatrúar fólk fær svona póst og bíður svo í 24 tíma eftir að hafa send póstinn frá sér til að minnst 20 manns sem eru allir ofsatrúar menn og það klikkar allt kerfið og ekkert gerist hjá þeim.  Það gæti blossað upp herferð hjá þessu fólki og endað með ósköpum.  En þar sem þetta er svo saklaust með fallegur engla myndum og blómum þá á þetta ekki að gera neinum neitt nema gott. En nóg af skrifum í dag. Hafið það gott um helgina og verið góð við hvort annað. Bjarney

Góður dagur?

Gíóðan daginn,

Nú er vikan að verða búin enn og aftur kominn fimmtudagur og enn er allt í lagi með land og þjóð enda bara nýja brum á nýju stjórninni.  Ingibjörg er enn að máta sig og núna fær hún kannski stíllista til að taka sig í geng og við fáum að sjá fyrir og eftri myndir af henni.  Hún verður að vera gella eins og menntamálaráðherran okkar.  Gæti komið vel út - veit ekki!! Svo var ég að heyra að vinkona okkar hafi fengið utanríkisráðherra stólinn til að halda henni frá innlendum málum. Sniðugt.

Nú er það nýjasta að taka víagra við flugþreyt.  Ég held að það sé nú ekki lekkjandi á flugþjónana og freyjur að farþegar fari að taka þær inn.  Er ekki til einhver önnur leið en þessi.  Ég get ekki hugsað mér að það sé þægilegt fyrir karlmenn sem eru kannski búnir að vera á miklum ferðalögum og lengi í burtu frá sinni elsku og orðnir þreyttir á þessu öllu, skella svo í sig einni viagra og öll þreyta á að hverfa á brott en hvað kemur í staðin.  Jemin eini ég vil ekki hugsa um það einu sinni. 

Ég var að horfa á fréttir í gær kl 22:00 og sá að nú eru blessuðu fuglarnir að lenda í honum kröppum hjá lóninu fyrir austan.  Það flæðir yfir öll hreiður hjá þeim og foreldrarnir reyna eftir bestu getu að bjarga eggjunum sínum. Sorglegt en svona er lífið.  Nú ætti að vera nægur tími fyrir Ómar vin okkar í Íslandshreyfingunni að fara og aðstoða þessi litlu grey í sínum vandræðum. Koma svo Ómar.

Í gær var ég að lesa eitt af okkar dagblöðum og sá að Icelandexpress var með auglýsingu um ferðir frá 7,995 eins og þeir eru svo oft með.  Ég hugsaði mér gott til glóðar og fór á netið og ætlaði að panta ferð til Billund að heimsækja vinkonu mín sem var að flytja út.  Ég byrjaði á að velja tíma sem var í júlí (jú dýrasti tíminn) valdi fjölda farþega 3 fullorðnir (Tómas er víst orðinn fullorðinn í flugi) og eitt barn undir 12 ára.  Ég valdi ódýrasta flugið sem ég fann báðar leiðir og svo kom síðasta myndinn með verðinu.  Viti menn þetta átti að kosta 166.000 fyir okkur öll að fljúga til Billund fram og til baka. Þá fór ég á Icelandair og valdi sömu dags, sama fjölda farþega og viti menn 163.000. Hvað er í gangi. Ég fer frekar með alla fjölskylduna í viku til sólarstrandar með hálfu fæði fyrir 175.000 sem ég fann á netinu daginn áður en ég skoðað þetta.

Jæja ég man ekki eftir frekara umræðuefni í bili. 

Bið að heisla þangað til  næst.

Bjarney


Nú er það ljóst!!!!

Nú er það ljóst að nýja ríkisstjórnin er komin.   Vinur litla mannsins er í réttum stað, hún Jóhanna, mágur Ingibjargar, Gissur loksins komin í starfið sem hann er búinn að bíða eftir, Gunnlaugur lagar núna  allt það sem hann sá fara miður þegar hann var á spítalunum um jólin, blessaður karlinn,  og Ingibjörg verður landinu til sóma erlendis, eða það fylgir því ráðuneyti sem hún fékk.  Svo verður Geir að hugsa um að allir séu vinir núna eftri margra ára rifrildi Crying

Aumingja Ágúst Ólafur fær ekki neitt að gera. 

Nú er bara að bíða og sjá hvort landið fer norður og niður eða stórmerkilegir hlutir gerast.  En í guða bænum farið varlega. 

 Kv,


Um bloggið

Bjarney Þórarinsdóttir

Höfundur

Bjarney Þórarinsdóttir
Bjarney Þórarinsdóttir
Það er gaman að lifa og geta haft skoðanir á hlutum eru forréttindi. Njótum þess.

Bloggvinir

Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • fallegustu dregir þó víða væri leytað

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 0
  • Frá upphafi: 549

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 0
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband